Um Blikkverk

Blikkverk er fjölhæft verktakafyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa að nýsmíði, viðhaldi og endurbótum fasteigna með áherslu að tryggja viðskiptavinum traustar og endingargóðar lausnir í takt við þarfir þeirra. Við tökum að okkur hin ýmsu verkefni bæði innan- og utanhúss, allt frá minni verkefnum og viðhaldi, upp í umfangsmeiri framkvæmdir og nýsmíði.

Við erum í samstarfi við aðila úr ólíkum greinum byggingariðnaðarins og nýtum öflugt tengslanet fagfólks til að sinna fjölbreyttum og umfangsmeiri verkefnum. Með góðu samstarfi og samhæfingu milli iðngreina getum við boðið viðskiptavinum heildstæðari þjónustu og tekið þátt í verkefnum frá upphafi til verkloka.

Markmið okkar er að veita trausta, heildstæða þjónustu þar sem fagleg vinnubrögð, gott skipulag og vandaður frágangur stenst væntingar viðskiptavina ásamt því að skapa verðmæti til framtíðar.

Hafa samband